Heimsmeistaramótið í Enduro hjólreiðum 2026

23.10 2026 09:37 | ummæli

Heimsmeistaramótið í Enduro hjólreiðum 2026

Heimsmeistaramótið í Enduro hjólreiðum fór fram dagana 16. til 18. október s.l. Í Finale Ligure á Ítalíu. Héðan frá Íslandi fóru þrír keppendur ásamt fararstjóra og myndatökumanni til að halda uppi heiðri okkar þjóðar.

Í ár var keppnisleiðin löng og krefjandi og reyndi á úthald og reynslu keppenda til að halda orkunni uppi yfir daginn. Leiðin var rúmlega 60 km. með 1800 m. klifri og 2800 m. lækkun, inní því voru sex sérleiðir sem voru mislangar frá 1 km. upp í tæpa 7 km.

Föstudagurinn 16. október var skipulagður æfingadagur keppninnar en þá verða keppendur að hjóla allar ferjuleiðir og sérleiðir keppninnar alveg eins og á keppnisdag. Þar reyndi vel á strákana og sérstaklega nýliðann í hópnum, Grétar, sem var að takast á við sinn stærsta hjóladag. En eftir daginn voru strákarnir með góða hugmynd um hvað þyrfti til að tækla keppnis daginn sjálfan.

Það var kærkomið að fá hvíld á laugardeginum og var hann vel nýttur í að sinna hjólum og mönnum.

Sunnudagurinn var svo keppnisdagurinn og áttu strákarnir rástíma frá miðbæ Finale Ligure rétt eftir kl.9:00, Grétar fór fyrstur af stað með rásnúmer 55 svo stuttu þar á eftir var Jónas númer 49 og svo Þórir númer 43. Strákarnir voru það nálægt hvor öðrum í rásröðinni að á ferjuleiðum gátu þeir oftast hjólað saman og gátu þannig peppað hvern annan fyrir hverja sérleið. Mikið var um áhorfendur og sérstaklega á síðustu sérleið dagsins sem er ein þekktasta enduro keppnisleið heims, DH Men. Þar var fólk meðfram stærstum hluta brautarinnar að hvetja og var stemmingin ólýsanleg að klára keppnina niður þá leið. Að lokum komust strákarnir inn til Finale Ligure eftir um 8 klst. dag á hjólinu, og allir komu heilir og sáttir með að hafa gefið allt sitt.

 

107 keppendur náðu að klára keppni af 113 skráðum í Elite flokki karla og þar endaði Þórir í 97 sæti, Jónas í sæti 102 og Grétar svo sæti 103. Umtalið um keppnina var strax að þetta væri með erfiðari keppnisdögum sem keppendur höfðu upplifað og því gríðarlega gott að sjá strákana klára keppnina með stæl og greinilegt að íslenskt enduro er að gera það gott.
 

Fulltrúar okkar í ár voru:
Þórir Bjarni Traustason
Grétar Guðmundsson
Jónas Stefánsson

Fararstjóri:
Börkur Smári Kristinsson

Myndatökumaður:
Hróbjartur Sigurðsson


Úrslit má sjá hér:
https://www.uci.org/competition-details/2026/MTB/77177

Björgvin Jónsson

Síðast breytt þann 23. October 2026 kl: 09:40 af Björgvin Jónsson

Ummæli

Aðrar fréttir

Heimsmeistaramótið í Enduro hjólreiðum 2026

23 October kl: 09:37

Heimsmeistaramótið í Enduro hjólreiðum fór fram dagana 16. til 18. október s.l. Í Finale Ligure á &I

Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027

19 October kl: 10:19

Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.

Seinasti keppnisdagur landsliðsins á EM í götuhjólreiðum - TT

7 October kl: 21:12

Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - þriðji keppnisdagur

5 October kl: 09:17

Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - annar keppnisdagur

3 October kl: 10:07

Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S

EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2 October kl: 17:56

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu

2 October kl: 00:00

Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da

HM í Montreal, Kanada

26 September kl: 22:16

Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei

Fjallabrunskeppninni í Isaberg, Svíþjóð

21 September kl: 11:50

Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor

HM Montreal - Davíð keppir í dag í TT

21 September kl: 10:18

Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,

HM í Götuhjólreiðum Montreal 20. til 27. september

14 September kl: 23:05

Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu

Hæfileikabúðir HRÍ 2026 Ísafirði

7 September kl: 14:15

Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna

Haust hæfileikabúðir HRÍ Ísafirði

31 August kl: 22:42

Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði

Íslandsmótið í Maraþon fjallahjólreiðum (XCM) 2026

28 August kl: 12:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e

Íslandsmót í XCM - ný tímasetning

19 August kl: 11:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág