Fréttir

Afreksbúðir UCI í Cyclo-Cross

Afreksbúðir UCI í Cyclo-Cross

22.07 2022 12:00 | ummæli

UCI hefur formlega boðið afreksfólk HRÍ á aldrinum 16–22 ára í sérstakar æfingabúðir er einblína á færni og þjálfun á sviði cyclo-cross greinarinnar.

Íslandsmót í Ólympískum fjallahjólreiðum Öskjuhlíð 2022

Íslandsmót í Ólympískum fjallahjólreiðum Öskjuhlíð 2022

22.07 2022 10:43 | ummæli

Í Öskjuhlíðinni í gærkvöldi fór fram Íslandsmótið í Ólympískum fjallahjólreiðum, XCO. Mótið var haldið af Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Sigurvegarar í Elíte flokkum og Íslandsmeistarar ársins 2022 voru þau Erla Sigurlaug Sigurðardóttir og Ingvar Ómarsson. Í öðru sæti í flokki kvenna var Elín Björg Björnsdóttir og í þriðja sæti Helga Lísa Kvaran. Í öðru sæti í flokki karla var Kristinn Jónsson og í þriðja sæti var Bjarki Bjarnasson.

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Banská Bystrica, Slóvakíu

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Banská Bystrica, Slóvakíu

19.07 2022 15:05 | ummæli

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar mun fara fram í Banská Bystrica, Slóvakíu dagana 24.-30. júlí n.k. Þrír þátttakendur munu taka þátt fyrir hönd Hjólreiðasambands Íslands, en keppnisferðin, utanumhald og skipulag er í höndum Afreks- og Ólympíusviði ÍSÍ. Þau þrjú sem munu taka þátt eru þau; Brynjar Logi Friðriksson, Ísak Gunnlaugsson og Sigríður Dóra Guðmundsdóttir öll úr HFR. Íslensku þátttakendurnir munu bæði taka þátt í götuhjólreiða keppninni sem og tímatökunni (U17).

Íslandsmót í Fjallabrun Akureyri 2022

Íslandsmót í Fjallabrun Akureyri 2022

18.07 2022 13:57 | ummæli

Í gær fór fram Íslandsmótið í Fjallabruni í Hlíðarfjalli Akureyri. Mótið var haldið af Hjólreiðafélagi Akureyrar. Sigurvegarar í Elíte flokkum voru þau Helga Lísa Kvaran og Bjarki Sigurðsson. Í öðru sæti í flokki karla var Jónas Stefánsson og í þriðja sæti varð svo Jökull Þór Kristjánsson. Úrslit dagsins voru þessi: A-flokkur Karlar 1. Bjarki Sigurðsson - HFA 2. Jónas Stefánsson - HFA 3. Jökull Þór Kristjánsson - BFH A-flokkur Konur 1.  Helga Lísa Kvaran - HFR JUNIOR KK 1. Elís Hugi Dagsson - BFH 2. Tómas Kári Björgvinsson Rist - BFH 3. Benedikt Björgvinsson - HFR U17 KK 1. Anton Sigurðarson - BFH 2. Skírnir Daði Arnarsson - HFA 3. Björn Andri Sigfússon - HFA U17 KVK 1. Júlíetta Iðunn Tómasdóttir - HFA 2. Elísa Magnúsdóttir U15 KK 1. Hlynur Snær Elmarsson - HFA 2. Tómas Rafn Harðarson - HFA 3. Einar Valur Bjarnason - HFR U15 KVK 1. Linda Mjöll Guðmundsdóttir - HFR U13 KK 1. Anton Ingi Davíðsson - HFA 2. Birkir Gauti Bergmann - Tindur 3. Friðþjófur Arnar Helgason - BFH U13 KVK 1. Sylvía Mörk Kristinsdóttir - HFA 2. Ásta Ninna Reynisdóttir - HFA 3. Harpa Kristín Guðnadóttir - HFA U11 KK 1. Elvar Magni Þorvaldsson - HFA 2. Eldar Ásþórsson - HFA Master 35+ flokkur KK 1. Sigurður Ólasson - BFH 2. Helgi Berg Friðþjófsson - BFH 3. Kristinn Magnússon - HFA Master 35+ flokkur KVK 1. Heiðrún Guðbjörnsdóttir - Tindur 2.Greta Huld Mellado - HFA 3.Þórdís Einarsdóttir - HFR

Evrópumótið í götuhjólreiðum í München

Evrópumótið í götuhjólreiðum í München

11.07 2022 02:01 | ummæli

Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í München, Þýskalandi 14.–21. ágúst 2022 n.k. Til þátttöku fyrir Íslands hönd hefur Hjólreiðasamband Íslands valið úr afrekshópi sínum þau: - Ingvar Ómarsson Breiðablik - Hafdísi Sigurðardóttir HFA - Silju Rúnarsdóttir HFA Öll munu þau taka þátt í tímatökukeppni sem og götuhjólakeppni Evrópumótsins.

EM í götuhjólreiðum U23 Anadía Portúgal í dag

EM í götuhjólreiðum U23 Anadía Portúgal í dag

10.07 2022 17:15 | ummæli

Evrópumótinu í U23 flokki karla í götuhjólreiðum var að ljúka í Anadia, Portúgal. Eyþór Eiríksson (HFR) náði að halda vel í hópinn á fyrsta hring en datt aftur úr á öðrum hring. Samtals náði hann að hjóla þrjá hringi áður en hann þurfti að hætta keppni vegna tímamarka. Matthías Schou Matthíasson (Tindur) missti af hópnum upp klifrið á fyrsta hring og fékk að hjóla einn hring áður en hann var flaggaður úr keppninni.

Tímatökukeppni Evrópumótsins U23 í Anadia, Portúgal

Tímatökukeppni Evrópumótsins U23 í Anadia, Portúgal

7.07 2022 17:42 | ummæli

Nú rétt í þessu var Eyþór Eiríksson að koma í mark í tímatökukeppni Evrópumótsins í götuhjólreiðum (U23) sem fer þessa dagana fram í Anadia, Portúgal. Í samtali við fréttaritara Hjólreiðasambandsins sagðist Eyþór vera nokkuð sáttur með frammistöðu sína í dag.  Brautin hafi verið skemmtileg og hröð með mjög tæknilegum köflum inn á milli, sérstaklega hafi verið nokkrir varhugaverðir kaflar í beygjum við hringtorg þar sem sandur hafi verið á brautinni.  Mikill hiti er í Portúgal núna og var 37°C hiti þegar Eyþór atti kappi við tímann í Anadía nú rétt áðan. Til gamans má geta þess að í seinasta móti sem Eyþór tók þátt í, Íslandsmótinu á Mývatni 25. júní s.l. var hitastigið um 2°C. Næst á dagskrá er svo götuhjólamótið sjálft næsta sunnudag (10. júlí), þar sem Eyþór og Matthías Schou Matthíasson munu taka þátt fyrir Íslands hönd. Íslenski hópurinn er búinn að fara í og skoða keppnisbrautina. Um er að ræða 23 km. hring sem farinn verður samtals 7 sinnum. Á hringnum eru tvö klifur, eitt stutt og bratt klifur og annað aðeins minna en lengra ca. 4 km. þar sem vænta megi mikillar keyrslu. Vonar Eyþór að hitinn úti verði eitthvað minni á sunnudaginn en hann var í dag.

Evrópumótið í fjalla- og götuhjólreiðum í Anadia Portúgal

Evrópumótið í fjalla- og götuhjólreiðum í Anadia Portúgal

27.06 2022 16:45 | ummæli

Evrópumótið í fjalla- og götuhjólreiðum fer fram í Anadia í Portúgal 1.–3. júlí (XCO) og 7.–10. júlí (RR).  Þau sem hafa verið valin og samþykkt að taka þátt eru eftirfarandi:  UEC MTB JUN/U23 EUROPEAN CHAMPIONSHIPS 1.–3. júlí  Tómas Kári Björgvinsson Rist (XCC & XCO)

Íslandsmótið í götuhjólreiðum 2022

Íslandsmótið í götuhjólreiðum 2022

25.06 2022 20:47 | ummæli

Í dag fór fram Íslandsmótið í götuhjólreiðum en ræst var við Reykjahlíð og hjólaður stór, samfelldur, hringur í áttina að Laxárvirkjun í norður. Hvammsbrekkan var tekin fyrir í tvígang á leiðinni en svo var hjólað í suður sem leið liggur inn að endamarkinu við Jarðböðin (Mývatni). Sigurvegarar voru þau Hafdís Sigurðardóttir og Ingvar Ómarsson en þau hafa verið með þónokkra yfirburði á þeim götuhjólamótum sem farið hafa fram á þessu sumri. Þess ber að geta að þau unnu einnig Íslandsmótið í tímatöku í Eyjafirði fyrr í vikunni.

Íslandsmótið í tímatöku 2022

Íslandsmótið í tímatöku 2022

23.06 2022 21:45 | ummæli

Í kvöld fór fram Íslandsmótið í tímatöku í Eyjafirði. Sigurvegarar voru þau Hafdís Sigurðardóttir og Ingvar Ómarsson en þau hafa verið með þónokkra yfirburði á þeim tímatökumótum sem farið hafa fram á þessu sumri. Úrslit kvöldins í A-flokkunum voru þessi: